Herbert og ég - 3 ára
Ég er orðin svaka stór stelpa, enda orðin 3 ára gömul!
Nú ætlum við Herbert bara að láta taka sérstakar myndir af okkur saman árlega þegar ég á afmæli.
Ef við nennum þá koma samt kannski aukamyndir inn á milli :)
Herbert og ég - 35 mánaða
Á leiðinni í bollukaffi hjá ömmu Rögnu og afa Hauki.
Herbert og ég - 34 mánaða
Hér erum við að horfa saman á sjónvarpið.
Herbert og ég - 33 mánaða
Jólafílingur í desember.
Herbert og ég - 32 mánaða
Kanínan fékk að vera með á þessari mynd :)
Herbert og ég - 31 mánaða
Ragna Björk og Herbert á kósí sunnudagsmorgni.
Herbert og ég - 30 mánaða
Tveggja og hálfs árs gömul Ragna Björk, í nýju sokkunum frá Guðbjörgu frænku, og Herbert fær að kúra í hlýju fanginu :)
Herbert og ég - 29 mánaða+
Myndataka þessa mánaðar tafðist því miður úr hófi fram, en við svindlum bara pínu og laumum inn mynd nokkrum vikum of seint ;)
Herbert og ég - 28 mánaða
Okkur Herbert finnst gaman að hoppa á trampólíni.
Herbert og ég - 27 mánaða
Hér erum við Herbert að borða ávaxtaís og horfa á barnatímann.
- x - x - x - x - x -
Herbert og ég - 26 mánaða
Okkur Herbert finnst gaman að fara á róló.
- x - x - x - x - x -
Herbert og ég - 25 mánaða
Mér þykir alveg óskaplega vænt um hann Herbert og finnst gott að knúsa hann :)