Það er svo skemmtilegt að sækja Rögnu Björk á leikskólann því ég fæ alltaf svo svakalega stórt knús og klapp á bakið frá litlu stúlkunni minni. Og það er heldur ekkert leiðinlegt að fá þau ummæli frá leikskólakennurunum á deildinni hennar að hún sé alltaf glöð og góð og standi sig svona vel. Í dag sögðu þær mér svo að þær væru komnar með gælunafn á hana og hún væri "litli kærleiksbjörninn þeirra". Mamman varð auðvitað ofboðslega ánægð og montin ;)
Og fleiri skemmtilegar fréttir, í gær var baðferð með nákvæmlega engum tárum! ;) Loksins! Hún fór reyndar að gráta pínu fyrst inni í stofu þegar við spurðum hana hvort hún ætlaði að fara í bað (svona til að undirbúa hana pínu áður en herlegheitin byrjuðu) en svo var bara fjör í baðinu og mikið buslað :) Við slepptum reyndar hárþvottinum í þetta skiptið, til að fá eina grátlausa baðferð, en þetta gekk sem sagt bara vel. Hún vildi reyndar mest lítið sitja og stóð svo til allan tímann, en þetta kemur allt saman :)
3 hafa lagt orð í belg