mynd
 
Ragna Björk


Ragna Björk og Herbert - 22. september 2007

Þegar Ragna Björk var 7 vikna gömul byrjaði ég að taka myndir af henni á viku fresti við hlið Herberts, gamla kálgarðsdúkkustráksins míns. Á myndunum má glöggt sjá hvernig Ragna Björk stækkar og dafnar.

Það er farið að verða erfiðara að stilla þeim "systkinunum" upp fyrir myndatökuna því Ragna Björk er virkilega hrifin af Herberti og grípur nú yfirleitt í hann um leið og þau eru lögð hlið við hlið á leikteppið.

Þetta myndband náðist af þeim saman þann 22. september 2007.