mynd
 
Ragna Björk


Ragna Björk í Graco-rólunni - 25. og 30. júní 2007

Þegar við Ragna Björk fórum að hitta Henríetturnar hjá Örnu mánudaginn 25. júní, uppgötvuðum við hina dásamlegu ungbarnarólu sem gengur fyrir rafhlöðum. Nína Rakel er með hana í láni hjá frænku sinni og leyfði Rögnu Björk að prófa. Við mæðgur kolféllum fyrir rólunni og linntum ekki látum fyrr en við fundum eins rólu sem var til sölu notuð á Barnalandi.is. Rólan kom síðan til okkar alla leið frá Ísafirði laugardaginn 30. júní og sló alveg í gegn! :)