Kl. 15:31 í dag er nákvæmlega ár síðan Ragna Björk kom í heiminn í Hreiðrinu á Landspítalanum. Okkur finnst það hálfótrúlegt að litla skottan sé nú þegar orðin 1 árs gömul en það er víst sannleikurinn í málinu.
Við höfum átt yndislegt ár með elskunni okkar, fylgst með henni stækka og dafna, brosað á móti fyrsta brosinu hennar, kynnt hana fyrir gulrótum, bönunum, kæfu o.fl., leyft agnarlitlum tönnum að narta pínu í puttana okkar, fagnað ákaft þegar fyrstu skrefin komu og skipt á óteljandi bleyjum! Og er þá aðeins brotabrot nefnt því við höfum gert svo margt margt fleira saman.
Svo ekki sé minnst á allt sem er framundan. Við bíðum spennt eftir framhaldinu og hlökkum til að halda áfram að kynnast litlu manneskjunni okkar.
Til hamingju með afmælið, elsku besta Ragna Björk!
8 hafa lagt orð í belg